Fréttir

Total items: 1194

Úrslitakeppnin framundan

Dags: 18.04.2005 16:54


Þá styttist óðum í fyrsta leik Úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki en á miðvikudagskvöldið kl. 20 taka Deildarmeistarar SR á móti SA, sem lenti í öðru sæti í Deildakeppninni, í Laugardalnum. Næsti leikur verður svo fyrir norðan á laugardaginn kl. 17, og sá þriðji á miðvikudaginn í næstu viku. Það lið sem fyrst vinnur þrjá leiki hampar Íslandsmeistaratitlinum. SR getur ekki teflt fram sínu sterkasta liði því varnarjaxlinn Ágúst Ásgeirsson er enn ekki búinn að jafna sig af þeim meiðslum er hann hlaut í febrúar, og er þar skarð fyrir skildi. Lið SA er hins vegar töluvert breytt því SA hefur nýtt sér þann rétt í reglum ÍHÍ að geta kalla inn í liðið fyrir Úrslitakeppnina fyrrum leikmenn sem leikið hafa erlendis í vetur. Þannig koma nú inn í lið SA Rúnar Rúnarsson og Jón Gíslason, sem munu eflaust styrkja lið SA verulega. Úrslitakeppnin er kærkomin fyrir alla íshokkíunnendur og vonum við að sem flestir sjái sér fært að mæta. SR hvetur m.a. stuðningsmenn til að fjölmenna norður á laugardaginn en SR býður upp á takmarkað framboð sæta norður með SR rútunni. Miðinn kostar 2000 kr en hægt er að skrá sig í síma 864-1243 (Óli).