Dags: 05.04.2005 20:32
Ísland mætti í kvöld N-Kóreu í öðrum leik sínum í heimsmeistaramóti 2. deildar og er skemmst frá því að segja að strákarnir okkar báru sigur úr býtum, 3-2. Kórea skoraði fyrsta markið en Úlfar Andrésson jafnaði síðan. Kórea bætti svo öðru marki áður en fyrsta lota var úti. Í annarri lotu jafnaði Daníel Eriksson leikinn, og gerði síðan enn betur er hann skoraði sigurmarkið í þriðju lotu. Jón Trausti Guðmundsson var í markinu og varði 40 skot af 42 sem mjög gott. Leikurinn var þó langt í frá einstefna hjá Kóreu því þeirra markvörður varði 33 skot. Þetta er óvænt, en glæsileg frammistaða og kemur beint í kjölfarið á stórgóðum leik gegn Belgum í gærkvöldi.