Fréttir

Total items: 1194

Peter Bolin með kvennalandsliði Svía

Dags: 03.04.2005 20:01


Á meðan okkar stelpur eru í harðri baráttu í Nýja-Sjálandi fer fram heimsmeistarakeppni bestu liða í Linköping í Svíþjóð. Peter Bolin, sem þjálfaði SR í tvö ár, áður en Stanislav Berger tók við, er núna aðstoðarþjálfari kvennalandsliðs Svía. Sænska kvennalandsliðið er mjög sterkt og er, ásamt Kanada og BNA, talið eitt af þremur sterkustu landsliðum heims í kvennaíshokkí. Þær sænsku unnu Rússa 3-1 í fyrsta leiknum og Kanada, núverandi heimsmeistari, valtaði yfir Kasakstan 10-0, og þær finnsku unnu þær þýsku 5-0.