Fréttir

Total items: 1194

Sögulegur leikur hjá kvennalandsliðinu

Dags: 01.04.2005 17:33


Kvennalið Íslands lék sinn fyrsta leik á heimsmeistaramóti er það mætti S-Kóreu í nótt. S-Kórea reyndist með sterkara lið og náði góðri forystu eftir tvo leikhluta, 7-0. Íslensku stelpurnar voru þó langt í frá tilbúnar til að gefast upp átakalaust; þær léku skínandi vel í þriðja leikhluta og unnu hann reyndar 2-1. Leikurinn endaði því 8-2 fyrir S-Kóreu. Fyrsta landsliðsmark Íslands í kvennaflokki skoraði Patricia Huld Ryan, en Hulda Sigurðardóttir bætti svo seinna markinu við. Samkvæmt þessum úrslitum á liðið heilmikið inni. Við óskum þeim til hamingju. Næsti leikur er svo gegn Rúmeníu. Áfram Ísland.