Fréttir

Total items: 1194

Þjálfarar SR með landsliðinu

Dags: 01.04.2005 17:34


Í morgun hélt karlalandslið okkar til Serbíu þar sem það tekur þátt í heimsmeistaramótinu. Enda þótt SR-ingar séu stoltir af þeim fjölda leikmanna í landsliðinu sem kemur úr röðum SR-inga, hefur þetta óneitanlega skapað ákveðin vandamál heima fyrir. Nær allir okkar þjálfarar fóru utan með landsliðinu, og þ.m.t. aðalþjálfari okkar, Stanislav. Sem betur fer búum við vel að ungum og upprennandi þjálfurum og mun Steinar Páll Veigarsson hafa umsjón með allri þjálfun í fjarveru landsliðskappanna. Honum til aðstoðar verður vösk sveit yngri leikmanna einsog Svavar Rúnarsson, Sindri Már Björnsson og Geoffrey Williams. Landsliðið kemur svo heim annan mánudag.