Fréttir

Total items: 1194

Ísland U18 tryggði sæti sitt

Dags: 28.03.2005 10:52


Þá er U18 heimsmeistarakeppni 2. deildar lokið í Rúmeníu og tókst Íslandi að halda sæti sínu í deildinni annað árið í röð. Slíkt verður að telja góð úrslit. Ísland vann Rúmeníu 10-1 en tapaði leikjum sínum við Ungverja, Litháa, Króata og Mexíkó. Þrátt fyrir þessi töp voru strákarnir að standa sig mjög vel, engin risatöp litu dagsins ljós, og sumir leikirnir voru frekar jafnir þar til langt var liðið á leikinn. Árangurinn gegn Ungverjum, 2-7 tap, er t.d. mjög góður en þeir voru með geysisterkt lið á mótinu. Með smáheppni, einsog gegn Litháen og Króötum, eða með eðlilegum leik gegn Mexíkó, hefðu þeir jafnvel geta náð bronsi í riðlinum, en til að slíkt gæti gerst þyrfti sjálfsagt agaðri leik og færri brottvikningar. En strákarnir geta yfirleitt verið ánægðir með sína frammistöðu við erfiðarar og framandi aðstæður. Til hamingju strákar!