Dags: 23.03.2005 10:24
Í gærkvöldi lék SR við Björninn B í Íslandsmóti 3. flokks, en leiknum lauk með auðveldum sigri SR, 13-2 . Lið Bjarnarinns byrjaði vel og skoraði fyrsta markið og auðséð var á okkar mönnum að þeir töldu leikinn fyrirfram unninn. SR jafnaði síðan en aftur skoraði Björninn og komst í 2-1, og var auðséð að Bjarnarmenn ætluðu sér svo sannalega að gera okkar mönnum erfitt fyrir. SR jafnaði aftur 2-2, en eftir það náðu okkar strákar að taka sig saman í andlitinu. Þeir fóru að spila saman og með það að leiðarljósi var eins og allt annað lið væri á vellinum. Þeir bættu við mörkum jafnt og þétt í öllum regnbogans litum og lönduðu öruggum sigri, 13-2.