Fréttir

Total items: 1194

Karlalandsliðið valið

Dags: 15.03.2005 09:20


landslid_007.jpg

Um helgina voru haldnar á Akureyri æfingabúðir fyrir karlalandsliðið sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu í byrjun apríl. Þjálfari þess er Stanislav Berger og nú hefur hann valið 24 manna hóp sem enn á eftir að minnka í 22 leikmenn. Í þessum hópi eru bæði eldri og reyndari leikmenn, og eins ungir og efnilegir strákar, og nægir þar að nefna SR-ingana Úlfar Andrésson, Gauta Þormóðsson, Kára Valson og Þórhall Viðarsson. Ennfremur eru á þessum lista ungu leikmennirnir frá Svíþjoð, bræðurnir Daniel og Patrik, og svo Emil Alengaard. Báðir markmennirnir eru síðan úr SR, þeir Jón Trausti og Birgir. Það þarf vart að koma á óvart enda hafa þeir báðir leikið mjög vel í vetur.Auk þess koma inn í liðið okkar sterku leikmenn sem nú spila í Danmörku, þeir Jónas Breki, íshokkíleikmaður ársins 2004, og Jón Gíslason.  Þetta virðist því vera hörkulið sem þarna er komið. Sjá hópinn hér.

Myndin tekin af heimasíðu ÍHÍ.