Fréttir

Total items: 1194

SR gerði góða ferð norður

Dags: 13.03.2005 19:39


SR gerði góða ferð norður um helgina er þeir mættu Narfa í tveimur leikjum í Íslandsmóti karla. Þetta voru síðustu leikir SR fyrir úrslitakeppnina sem hefst um miðjan apríl. Á laugardagskvöldið lögðu SR-ingar Narfa á sannfærandi hátt, 9 -1, í skautahöllinni á Akureyri. Þeir mættu svo aftur Narfanum á sunnudagsmorgni og þá héldu þeir flugeldasýningunni áfram og unnu 13 - 1. SR-ingar léku mjög vel í báðum þessu leikjum, slökuðu aldrei á, og spurningin var allan tímann sú hversu stórir þessir sigrar yrðu.

Narfi átti á brattann að sækja í þessum leikjum og greinilegt að æfingaleysi, og kannski ákveðið áhugaleysi, er farið að hrjá suma þeirra. Hins vegar er mikilvægt fyrir íshokkíið að fjórða liðið haldi velli í deildinni og til að það gangi eftir þurfa þeir að æfa og fá fleiri leikmenn sem eru tilbúnir að mæta a.m.k. í leikina.

SR hefur lokið deildakeppninni en SR náði 27 stigum og þar með efsta sætinu í deildinni. Þeir verða nú að bíða úrslitakeppninnar en þangað til verða a.m.k. sumir leikmanna SR uppteknir í landsliðsferðum, bæði með U18 ára landsliðinu og eins með karlalandsliðinu. Þetta þýðir að SR og SA spila til úrslita en fyrsti leikurinn í úrslitunum verður heimaleikur SR í Laugardalnum.