Fréttir

Total items: 1194

Danmerkurferð 3. flokks

Dags: 13.03.2005 19:15


3fl-ferdalag2005.JPG

Um síðustu helgi fóru strákarnir okkar úr 3. flokki í keppnis- og skemmtiferð ferð til Danmerkur, í kjölfar glæsilegs árangurs þeirra í vetur, en þeir urðu sem kunnugt er Íslandsmeistarar í 3. flokki. Í ferðinni léku þeir við KSF og Gladsaxe frá Kaupmannahöfn, og mættu auk þess á æfingu með KSF liðinu. Það er skemmst frá því að segja að ferðin tókst í alla staði mjög vel. Ferðin byrjaði á því að mæta á æfingu hjá KSF á föstudagskvöldi, og eftir þá æfingu var boðið upp á léttar veitingar hjá KSF, en KSF heimsótti SR í byrjun febrúar. Á laugardegi var Strikið náttúrulega grandskoðað en um kvöldið léku þeir við KSF. Ekki gekk allt upp í þeim leik, strákarnir eftir sig eftir verslunarleiðangur (!), en leikurinn tapaðist 6 - 2. Eftir leikinn bauð KSF upp á kvöldmat. Á sunnudeginum var leikið við Gladsaxe og er óhætt að segja að sá leikur hafi verið erfiður. Gladsaxe liðið spilaði gróft en alls voru 6 leikmenn þeirra sendir í sturtu. Leikurinn endaði 3 - 3 og strákarnir voru fljótir að jafna sig á þessum leik. Farið var í m.a. keilu og sprellað það sem eftir var dags. Á mánudegi var vaknað snemma, herbergin á Farfuglaheimilinu þrifin og flugið tekið heim. Segja má að ferðin hafi tekist mjög vel og er það bæði fararstjórunum að þakka, þeim Gulla og Hauki og Gústa þjálfara, og eins strákunum, sem voru til fyrirmyndar í umgengni og hegðun alla ferðina, og félaginu til mikils sóma. Þetta eru skemmtilegir og fjörugir strákar sem eiga vonandi eftir að leika fyrir félagið um ókomin ár.