Dags: 10.03.2005 00:45
Í gærkvöldi tók SR-ingar á móti Birninum í Laugardalnum. SR-ingar, sem hafa nú þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni, voru öryggið uppmálað frá byrjun. Þrátt fyrir að Björninn hafi skorað eftir aðeins 45 sek létu þeir markið ekki slá sig út af laginu, heldur unnu sig strax aftur inn í leikinn með glæsilegu, hnitmiðuðu skoti frá Stefáni Hrafnssyni í vinkilinn. Þeir komust svo yfir 2-1, en Björninn jafnaði eftir mikil varnarmistök hjá SR. Enn sýndu SR-ingar gott keppnisskap, sigldu hægt og rólega fram úr með mörgum góðum mörkum og unnu öruggann sigur, 10 - 4. Á þessum kafla sýndu SR-ingar mjög góðan leik, héldu einbeitingunni og leikgleðinni sem einkennt hefur liðið mest allan veturinn. Meira að segja Zdenek, sem oft hefur haft skoðanir á hlutunum í vetur, hélt ró sinni þrátt fyrir að hafa verið þrívegis í leiknum blóðgaður í andlitið, ýmist með olnboga eða kylfu. Zdenek er fádæma sterkur og léttleikandi leikmaður, oft unun að fylgjast með hæfileikunum, en þeim mun meira miður eru aðferðirnar sem oft hafa verið notaðar í vetur til að stöðva hann. Allir leikmenn SR eiga hrós skilið fyrir góðan leik. Gaman er að sjá hvernig Ingvar nálgast stöðugt sitt fyrra form, eftir hvimleið meiðsli í vetur. Ennfremur var gaman að sjá hversu vel Gauti og Stefán náðu saman í sókninni. Hjá Birninum var Sergei enn og aftur þeirra yfirburðarmaður ásamt markmanni, sem varði mjög vel framan af. Mörk SR: Gauti 3, Stefán 3, Helgi Páll 1, Kári 1, Svavar 1 og Úlfar 1. Mörk Bjarnarins: Sergei 2, Hrólfur 1 og John 1.