Dags: 09.03.2005 08:16
Í kvöld tekur SR á móti Birninum í Laugardalnum en þetta er síðasti heimaleikur SR fyrir úrslitakeppnina sem hefst í apríl. SR mætti Birninum í síðustu viku en þeim leik lyktaði með sigri SR, 7 - 4. Leikmenn SR eru tilbúnir í slaginn en verða þó án Ágústar Ásgrímssonar sem slasaðist illa í þeim leik er hann fékk pökkinn í andlitið, og er skarð fyrir skildi. Við hvetjum alla til að fjölmenna á leikinn en hann hefst kl. 21:00.