Dags: 06.03.2005 18:32
Í gærkvöldi var háður í Laugardalnum leikur milli SR og SA í Íslandsmóti 2. flokks en þessi lið höfðu áður mæst á Akureyri, en þá báru SR-ingar sigur úr býtum. SR endurtók leikinn í gærkvöldi og vann frekar auðveldan sigur á SA, 7 - 3. Þrátt fyrir að leikurinn færi mjög seint fram voru leikmenn beggja liða nokkuð sprækir, sérstaklega SR, sem spilaði oft á tíðum frábærlega, pökkurinn gekk vel á milli manna og hraðinn góður. SA mætti svo Birninum í morgun í Egilshöll en þann leik unnu heimamenn, 3 - 2. Mörk SR: Gauti Þormóðsson 2, Úlfar Andrésson 2, Ríkharður Brandsson 1, Sindri Gunnarsson 1 og Þorsteinn Björnsson 1. Mörk SA: Guðmundur Guðmundsson 2 og Steinar Grettisson 1.