Dags: 05.03.2005 09:33

Í gærkvöldi hófst Laugardalsmót yngri flokka í íshokkí en þetta mót er eitt af þremur mótum vetrarins fyrir yngri flokka. Mjög góð þátttaka er í mótinu og greinilegt að mikil gróska er innan félaganna þriggja. Mótið var formlega sett kl. 19:15, liðin kynnt og leikmönnum afhent peysa mótsins, en SR-ingar fengu bláa teyju, SA rauða og Björninn svarta. Síðan tóku við leikir með 6. og 7. flokki en kvöldið endaði með bráðskemmtilegum og spennandi leik milli SR og Bjarnarins í 5A.
Smelltu hér -> til að sjá dagskrá mótsins.
Einnig tekur 2. fl. SR á móti SA á laugardalskvöldinu kl. 21:30.