Fréttir

Total items: 1194

Fyrsta kvennalandsliðið valið

Dags: 22.02.2005 22:09


Í gær var tilkynnt valið á þeim 20 leikmönnum sem munu skipa fyrsta formlega landslið kvenna í íshokkí, en liðið tekur þátt í heimsmeistaramóti þriðju deildar sem fram fer á Nýja Sjálandi. Enda þótt SR hafi því miður ekki á kvennaliði að skipa er huggun harmi gegn að a.m.k. tveir leikmenn, þær Lilja María Sigfúsdóttir og Karitas Sif Halldórsdóttir, hófu að spila íshokkí með SR við góðan orðstýr, en þær eru núna í Birninum. Við óskum leikmönnunum til hamingju en þær sem skipa landsliðið má sjá á síðu ÍHÍ.