Fréttir

Total items: 1194

SR lagði SA í æsispennandi leik

Dags: 20.02.2005 14:12


Í vetur höfum við séð marga skemmtilega og spennandi leiki en margir myndu telja að leikur SR við SA í gærkvöldi hafi slegið fyrri met í spenningi og skemmtanagildi. Og það var við hæfi að leikmenn beggja liða lögðust á eitt um að gera sitt besta en leikmenn léku með sorgarbönd tl minningar um Magnús Einar Finnsson, nýlátinn formann SA. Eftir góða pressu SA í byrjun fyrstu lotu tóku SR-ingar öll völd, pressuðu stíft og sundurspiluðu oft vörn SA, án þess þó að geta komið pekkinum í netið. Til þess fengu þeir nokkur dauðafæri sem fóru forgörðum með klaufagangi en góðu skotin hirti markmaður SA.  Fyrsta markið leit þó dagsins ljós á 17. mín er Gauti stýrði pekkinum laglega í vinkilinn eftir sendingu Zdeneks. Staðan 1-0 eftir fyrstu lotu. Í byrjun 2. lotu héldu SR-ingar uppteknum hætti, sóttu stíft en það þurfti þó glæsilegt einstaklingsframtak Zdeneks til að brjóta aftur ísinn, en hann óð upp völlinn, sólaði nokkra SA leikmenn í leiðinni og kláraði með góðu skoti í vinkilinn. Staðan 2-0 og nú héldu víst flestir að SR myndi halda uppteknum hætti og ganga frá SA. En það var öðru nær. Leikmenn SA spíttu í lófana, í kjölfar 2 10 mín brottrekstrar Zdeneks fyrir bakkeyrslu, og tóku að pressa SR-inga stíft. Eftir slæm varnarmistök SR uppskáru þeir þrjú mörk á 3 mín. kafla og breyttu stöðunni úr 2-0 í 2-3. Hér var Tibor í aðalhlutverki hjá SA en Trausti markvörður SR sá til þess að skemmdirnar yrðu ekki enn meiri. Þegar hér var komið sögu var alveg óvíst hvernig þessi leikur færi og spurningin hvort SA héldu uppteknum hætti eða hvort SR myndi taka sig saman í andlitinu. Strax í byrjun 3. lotu var ljóst að SA ætlaði að halda fengnum hlut en það var líka augljóst að SR ætlaði ekki að spila aftur eins illa og þeir gerðu í öðrum leikhluta. Þeir byrjuðu á að pressa stíft, sérstaklega er Zdenek kom aftur inn á eftir brottvikninguna í öðrum leikhluta, og héldu uppi hröðu spili sem vörn SA átti erfitt með að leysa. Og árangurinn var stórskotahríð að marki SA. En allt kom fyrir ekki; SR virtist fyrirmunað að skora, sérstaklega þar sem markmaður SA fór á kostum. Í svona stöðu þarf einhvern til að brjóta ísinn og hver er betur til þess fallinn en Svavar, sem fram að þessu hafði ekki verið mjög áberandi í leiknum. Með réttri staðsetningu og öryggi fyrir framan markið náði hann frákasti eftir skot Helga Páls og jafnaði 3- 3, þegar aðeins 3 mín og 10 sek voru eftir af leiknum. Við markið elfdust SR-ingar enn frekar og sóttu án afláts og þegar um 10 sek voru eftir af leiknum fékk Zdenek pökkinn fyrir aftan sitt eigið mark, tók á rás upp vinstri kantinn, skildi leikmenn SA eftir í forundran og komst aftur fyrir alla varnarlínu SA og með gabbhreyfingu sendi hann pökkinn örugglega í netið þegar fjórar sek voru eftir af leiknum! Þar með var sætur sigur SR í höfn, 4-3. Þessi leikur verður lengi í minnum hafður, alla vega hjá SR-ingum. Í þessum leik sáum við mörg stórkostleg tilþrif, gott spil og líka virðingu leikmanna fyrir hverjum öðrum. Margir munu seint gleyma frammistöðu Zdeneks í þessum leik, bæði fyrir einstaka kylfutækni og eins skautastíl. Þessi stundum-of-málglaði leikmaður er einstakur hér á landi fyrir hæfileika og getu; gaman væri t.d. að sjá aftur hvernig hann fór að því að leika á Tibor með snúningi á ísnum. Þetta er eitthvað sem við sjáum ekki á hverjum degi hér á landi. Það er vonandi að sýningar einsog þessar hvetji aðra leikmenn til dáða. Flest allir í liði SR spiluðu vel í þessum leik, ef undan er skilinn annar leikhluti, en af öðrum ólöstuðum var Jón Trausti markvörður frábær í þessum leik, öruggur og yfirvegaður. Einnig var mikil barátta í Helga Páli sem smitaði út frá sér. Varnarmennirnir voru traustir og gerðu fá mistök. Hjá SA var Tibor allt í öllu í spili þeirra en þeirra langbesti maður var markmaðurinn, Michal. Hann hélt liðinu inn í leiknum og bjó til þær aðstæður að SA hefði geta unnið leikinn með 3 mörkum skoruðum. SA-ingar fóru sjálfsagt súrir norður en þeir geta huggað sig við það að hafa tekið þátt í bráðskemmtilegum, prúðmannlega leiknum kappleik í minningu Magnúsar Einars Finnssonar.

Mörk SR: Zdenek 2, Gauti 1 og Svavar 1

Mörk SA: Tibor 2 og Jón Heiðar 1