Fréttir

Total items: 1194

SR gegn SA í Íslandsmóti karla

Dags: 18.02.2005 16:02


Á laugardagskvöldið leikur SR við SA í Íslandsmóti karla en þessi stórleikur er auglýstur sem hluti af dagskrá Vetrarhátíðar í Reykjavík. Þ.a.l. má búast við góðri mætingu áhorfenda en frítt er á leikinn. Við hvetjum náttúrulega alla SR-inga að mæta og hvetja sitt lið. Bæði liðin áttu góða leiki í síðustu umferð og alveg ljóst að mikið er í húfi, enda geta úrslitin fallið á hvorn veginn sem er. Þessi leikur er þó leikinn í skugga andláts Magnúsar Einars Finnssonar, formanns SA, er lést s.l. sunnudags, en hans er sárt saknað í íshokkíhreyfingunni. Leikurinn hefst kl. 19:45 en strax að honum loknum leikur 3. fl. SR við 3. fl. SA í Íslandsmótinu.