Dags: 15.02.2005 10:06
Í gærkvöldi lék 3. flokkur SR seinni leik sinn við danska liðið KSF en fyrri leik liðanna lauk með jafntefli, 1 - 1. Leikurinn var frá fyrstu mínútu hin besta skemmtun og leikmenn staðráðnir í að leika íshokkí fyrst og fremst, í stað þess að hafa hugann við eitthvað annað. SR-ingar mættu mjög ákveðnir til leiks og áttu mjög góðan leik og unnu nokkuð örugglega, 5 - 3. Varnarleikurinn var mjög öflugur og öruggur, og samspilið oft á tíðum frábært, bæði út úr vörninni og í sókn. Mun meiri breidd er í liðinu en var í haust og innan þess eru mjög sterkir einstaklingar sem geta pressað andstæðinginn vel, haldið pekkinum og losað þannig um aðra leikmenn. Svo eru það ungu og stuttu leikmennirinir sem eru alveg óhræddir við stóru strákana og með mjög góðan leikskilning. Leikurinn var því góð æfing fyrir ferð þessa stráka til Danmerkur um næstu mánaðarmót. Heimsókn KSF tókst í alla staði vel og gestirnir voru himinlifandi yfir móttökunum sem þeir fengu hjá SR og foreldrum strákanna í 3. flokki. Allir lögðust á eitt um að gera heimsóknina sem skemmtilegasta og góð steming ríkti í félagsheimili okkar þar sem gestir og gestgjafar skeggræddu og borðuðu saman. Mörk SR: Egill 1, Gunnar 1, Gunnlaugur 1, Jón Þröstur 1 og Ragnar 1.