Fréttir

Total items: 1194

Kona dæmir leik í Íslandsmóti karla

Dags: 19.02.2005 13:08


fyrstaislenskadomarkonan.jpg

Leikur SR við Narfa s.l. laugardagskvöld var tímamótaleikur í sögu íshokkís hér á landi, en þá var í fyrsta skipti íslensk kona, Berglind Ólafsdóttir, að dæma leik í Íslandsmóti karla. Og óhætt er að segja að frumraun hennar hafi tekist vel því hún hafði mjög góð tök á leiknum. Berglind er aðeins 19 ára og nú þegar komin með talsverða reynslu af dómgæslu í yngri flokkunum. Auk þess hefur hún margsinnis verið aðstoðardómari hjá körlunum. Berglind hefur sótt dómaranámskeið sem hér hafa verið haldin á vegum Alþjóðaíshokkísambandins og mun eflaust verða æ meir áberandi í dómgæslu hér á landi. Spurningin að lokum er hins vegar þessi: Er þetta í fyrsta skipti sem íslensk kona dæmir leik í Íslandsmóti karla hér á landi? Gaman væri að fá svör við því.