Fréttir

Total items: 1194

Íslenskt íshokkí í BBC

Dags: 14.02.2005 15:02


Þessa dagana er statt hér á landi tökulið frá BBC er vinnur að gerð sjónvarpsþáttar er heitir "Blue Peter". Þátturinn er mjög vinsæll í Englandi með meira en eina milljón áhorfenda. Þátturinn sem tekinn er upp á Íslandi fjallar um er Zoé, þáttastjórnandinn, fær að reyna sig í íshokkíliði á Íslandi, en SR var beðið um að aðstoða við að skipuleggja þessa uppákomu á ísnum. Af þessu tilefni mun kvennalið Bjarnarins leika við 4B úr SR, en í liði Bjarnarins verður einmitt þessi Zoé. Til að hún gæti nú eitthvað gert í leiknum var Helgi Páll, skautakennarinn okkar, fenginn til að aðstoða hana við að ná tökum á skautunum. Hvernig til tókst verðum við bara að sjá í kvöld, sunnudagskvöld, en leikurinn, sem verður tekinn upp af BBC, hefst kl. 19:30 í Skautahöllinni í Laugardalnum. Við hvetjum sem flesta til að mæta á leikinn og hvetja liðin. Heimasíðu þessa sjónvarpsþáttar má sjá hér