Dags: 06.02.2005 21:57
Í dag lauk á Akureyri móti 4.flokks sem SA skipulagði en þetta mót er hluti af Íslandsmótinu. SR og Björninn sendu hvert þrjú lið til keppninnar og SA tvö lið. A-liðin spiluðu tvöfalda umferð innbyrðis og bar SR þar sigur úr bítum en þeir unnu alla sína leiki. B- og C-liðin léku síðan innbyrðis og enn og aftur stóð SR sig vel. C-liðið vann t.d. góðan sigur á C-liði Bjarnarins 8 - 1. B-lið SR var mjög sterkt, lék vel og vann keppni B/C-liða. Ferðin norður tókst í alla staði mjög vel og má það ekki síst þakka það farastjórunum, þeim Sigurleifi Ágústssyni yfirliðstjóra, Atla Sigurðarsyni og Axel Einarssyni. Frábær ferð og frábær árangur. SR vill þakka SA fyrir skemmtilegt mót og gott skipulag. Úrslit allra leikja má nálgast hér.