Fréttir

Total items: 1194

Skin og skúrir norður á Akureyri

Dags: 31.01.2005 15:23


Meistaraflokkur og 3.flokkur Skautafélags Reykjavíkur hélt norður yfir heiðar til að etja kappi við heimamenn á Akureyri.  Skemmst er frá því að segja að SR-ingar komu sigurasælir frá sínum viðureignum ef undanskilinn er fyrsti leikur Mfl.

Fyrsti leikurinn hjá Mfl. fór 9 - 6 fyrir heimamönnum, akureyringum, og áttu SR-ingar einkar slappan og dapran leik þar sem leikmenn misstu sig of mikið í sóknarhlutverk og steingleymdu varnarhlutverki sínu.  Akureyrnigar tóku öll völd strax í fyrsta leikhluta og héldu forystunni allt til enda.  Þrátt fyrir þann leik voru menn ekki af baki dottnir og sáu fram á góðan leik morguninn eftir. 

Leikur 3.fl var strax á eftir Mfl. leik laugardagskvöldið. Hafa okkar strákar haft áskrift á sigur á SA-mönnum í 3.fl í vetur og ekki var breyting á í þessum leik og unnu SR-ingar leikinn sannfærandi 11 - 0.

Annar leikur Mfl SA og SR fór fram í dagrenningu í Skautahöllinni á Akureyri.  Ekki voru SA-menn jafn ferskir og í fyrri leiknum og SR-ingar gengu á lagið og skorðu alls 3 mörk áður en SA-menn vöknuðu til lífsins.  Í annari lotu lentu heimamenn í brottrekstarvandræðum sem SR nýttu sér til fullnustu.  Það var greinilegt að hjá SA-mönnum var þrekið búið og leikgleðin var lítil í þessum seinni leik liðanna. Eitthvað létu menn þetta fara í taugarnar á sér og fengu nokkrir leikmenn SA sturtudóm frá dómara leiksins.  Hinsvegar hjá okkur SR-ingum var liðsandinn í algjöru hámarki og menn voru hressir og glaðir þegar farið var inn á ísinn, allt frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu enda uppskar liðið stórsigur á gamla hokkíveldinu 16 - 3 og muna elstu menn á Akureyri ekki eftir slíku tapi hjá SA og verður því þetta að teljast stærsta tap SA frá upphafi.

Verður það að segjast að þetta var nokkuð skemmtileg ferð og já ekki verra að taka tvo sigra fyrir félagið heim.