Fréttir

Total items: 1194

Allt í gang hér heima!

Dags: 19.01.2005 19:04


Um næstu helgi leikur SR við Narfa í Íslandsmóti karla. Nokkuð langt er um liðið síðan SR lék í karlaflokki en eftir að hafa heimt okkar stráka, og Helga Pál með, frá Mexíkó er hægt að snúa sér að innlendu íshokkí af fullri alvöru. Leikurinn verður á laugardagskvöldið og hefst kl. 19:00. Við hvetjum nú okkar fólk til að mæta vel á leikinn og njóta þess að til sé íshokkí á Íslandi, og það bara sæmilegt. Keppnin í deildinni er mjög jöfn og skemmtileg, og svo virðist sem allir geti unnið alla. Þannig á það líka að vera.