Fréttir

Total items: 1194

Glæsilegur endir hjá U20 liðinu

Dags: 17.01.2005 08:26


Eftir tvo slaka leiki á heimsmeistaramótinu sýndi Ísland sínar bestu hliðar er það rótburstaði Suður Afríku 8 - 1 í síðasta leik mótsins. Á köflum sýndu okkar strákar snilldar tilþrif og Suður-Afríka, sem fyrir mótið var talið með eitt sterkasta liðið, sá ekki til sólar. Þetta var því góður endir á þessu skemmtilega móti og sýndi, svo ekki verður um villst, að framtíðin er björt hjá Íslandi í íshokkí, því flestir strákanna eru mjög ungir að árum og eiga því nokkur ár eftir í þessum aldursflokki, öfugt við flest önnur lið. Mörk Íslands í þessum leik: Gauti Þormóðsson 2, Þorsteinn Björnsson 2, Birkir Árnason 1, Daniel Eriksson 1, Jón Ingi Hallgrímsson 1 og Elmar Magnússon 1.

Við verðlauna afhendingu á mótsslitum var Aron Leví Stefánsson markmaður kjörinn besti maður liðsins, Gauti Þormóðsson var stigahæsti maður mótsins með 14 stig, 10 mörk og 4 stoðsendingar, og Birkir Árnason var kjörinn besti varnarmaður mótsins.