Dags: 17.01.2005 08:14
Ísland náði sér aldrei á strik í mikilvægum leik gegn Nýja Sjálandi, ef undan er skilinn Aron Stefánsson, markmaður, sem kosinn var maður leiksins af Íslands hálfu. Nýja Sjáland komst í 1-4 en með harðfylgi náðu þó okkar menn að minnka muninn í 3-4. Síðustu mínútuna lék Ísland án markvarðar, til að freista þess að jafna, en þá bættu Ný Sjálendingar 5. markinu við. Þetta er miður þar sem þetta var í raun úrslitaleikurinn um annað sætið. Mörk Íslands: Gauti Þormóðsson 2, Birkir Árnason 1.