Fréttir

Total items: 1194

Brotlending á móti Mexíkó

Dags: 14.01.2005 08:37


Ekki tókst Íslandi að vinna þriðja leikinn í röð á U20 heimsmeistaramótinu en þeir mættu heimamönnum frammi fyrir 4500 áhorfendur. Hið sterka lið Mexíkó sigraði örugglega , 10-4, og er því eitt á toppnum í þessum riðli. Einhver deyfð virtist vera í liðinu, eins og gengur, en þeir leika næst á morgun við Nýja-Sjáland. Það er alveg ljóst að þessi strákar rífa sig upp og klára þann leik. Við óskum þeim góðs gengis. Annars má lesa nánar um leikinn hér.