Fréttir

Total items: 1194

U20 HM hefst í dag

Dags: 10.01.2005 08:45


Í dag leikur U20 landslið Íslands fyrsta leik sinn í heimsmeistarakeppninni er það mætir Tyrkjum en riðill okkar manna fer fram í Mexíkó City. Leikurinn hefst kl. 17:00 að staðartíma sem er víst 9 stundum á eftir okkar tíma. Landsliðið hélt utan á laugardag en kom til Mexíkó á sunnudegi eftir langt og strangt ferðalag. Á föstudagskvöldið mættu þeir Pressuliði í æfingaleik í Skautahöllinni í Laugardal og unnu þeir hann nokkuð auðveldlega, 7-5, eftir að hafa lent undir 2-4. Liðið lék á köflum skínandi vel og vonandi að liðið sýni sínar bestu hliðar í Mexíkó en sigurinn gegn Pressuliðinu er vonandi gott veganesti. Gangi þeim vel.