Fréttir

Total items: 1194

Kanada heimsmeistarar U20

Dags: 05.01.2005 20:22


Um næstu helgi heldur U20 landslið Íslands til Mexíkó til að taka þátt í heimsmeistaramóti U20 liða í þriðju deild. Í gærkvöldi réðst hinsvegar hvaða þjóð er best allra í þessum aldursflokki er Kanada rótburstaði Rússa 6 - 1 í úrslitaleik þeirra bestu. Kanada tefldi fram 12 NHL leikmönnum og 11 sem höfðu verið valdir í nýliðavali NHL (draft). Með þessum sigri undirstrikuðu Kanadamenn að þeir eru búnir að ná forystunni í íshokkíinu, því þeir eru einnig heimsmeistarar karla og U18 liða. Besti leikmaður mótsins (MVP) var kjörinn Patrice Bergeron frá Kanada, besti varnarmaðurinn landi hans, Dijon Phaneuf, og besti sóknarmaðurinn Alexander Ovechkin frá Rússlandi. Tékknn Marek Schwarz var svo nn besti markvörðurinn. Tékkar unnu svo Bandaríkjamenn um bronsið, 3-2. Nú er svo komið að Íslandi að spila vel í Mexíkó og vinna sig upp í aðra deild.