Fréttir

Total items: 1194

Naumt tap gegn SA

Dags: 19.12.2004 07:10


Í gærkvöldi lék SR við SA í Íslandsmóti karla í Laugardalnum. Leikurinn var fyrir margra hluta sakir athyglisverður, m.a. þar sem SR-ingar gátu ekki stillt fram sínu sterkasta liði. Bæði vantaði Zdenek og báða markmennina, og eins var óvíst hvort fyrirliðinn, Ingvar Þór, væri leikfær. SA byrjaði með látum og hélt uppi mikilli pressu fyrstu mínúturnar. Þeir skoruðu fljótlega og virtust sem þeir ætluðu að eiga náðugan dag hér fyrir sunnan. Ekki bætti úr skák að Ingvar varð fljótlega að yfirgefa leikinn vegna meiðslanna sem hrjáð hafa hann. Þrátt fyrir þetta tókst SR að halda í við SA. Munaði þar miklu um að Svavari Rúnarssyni tókst að brjóta ísinn með góðu marki. Þetta hleypti lífi í SR og voru þeir aldrei langt undan SA. Í þriðju lotu náðu þó SA að breyta frekar jöfnum leik úr 4-3 í 6-3, eftir tvö slæm varnarmistök hjá SR. En SR neitaði að gefast upp og með mikilli baráttu náðu þeir að minnka muninn í 6-5 um miðbik þriðja leikhluta. SR hélt uppi góðri pressu og þegar skammt var til leiksloka fengu þeir vítaskot. Ekki tókst SR þó að nýta það og SA gat fagnað sigri. SR átti mjög góðan dag, þrátt fyrir þetta tap. Í markinu stóð Aron Stefánsson úr 3. flokki sem varði mjög vel, sérstaklega í fyrsta leikhluta þar sem hann hélt SR inni í leiknum. Með þessari frammistöðu undirstrikaði hann enn og aftur að þarna er gríðarlegt markmannsefni á ferðinni haldi hann sér við efnið. En liðið allt stóð fyrir sínu og ungu strákarnir skiluðu sínu hlutverki með sóma, sérstaklega varnarhlutverkinu. Það er t.d. ekkert grín að mæta fyrstu línu SA, sem gerði reyndar öll þeirra mörk - þar verður bara að halda í horfinu. Liði SR stjórnaði Ágúst Ásgrímsson eins og herforingi, sem átti einn sinn besta leik í vetur, einmitt þegar á þurfti að halda. Og margir blómstruðu í þessum leik. Svavar stóð sig sérstaklega vel, ótrúlegur að þefa uppi færi. Úlfar Andrésson var sívinnandi um allan völl og varnarmennirnir Guðmundur Björgvinsson, Kári Valsson og Þórhallur Viðarsson voru mjög öryggir. Í liði SA var fyrsta línan, með Slóvakana og Clark, geysilega sterk. En skemmtilegasti leikmaður SA í þessum leik var þó Björn Már Jakobsson sem spilaði mjög vel og gerði 3 góð mörk. Þar er á ferðinni góður, íslenskur leikmaður. Mörk SR: Svavar 2, Gauti Þormóðsson 1, Steinn Rúnarsson 1 og Úlfar Andrésson 1. Mörk SA: Björn 3, Clark McCormick 1, Jan Kobesda 1 og Tibor Tatar 1. Leikurinn var mjög vel dæmdur hjá Snorra og línuverðir þeir Ragnar og Berglind góðir. Annars voru leikmenn flestir í jólaskapi.