Dags: 16.12.2004 20:20
Um þessa helgi verða haldnar æfingabúðir (try-out) fyrir U20 landslið okkar sem á að fara til Mexókó 10. janúar. Þar mun landsliðið spila gegn heimamönnum, Búlgaríu, Nýja Sjálandi, Suður-Afríku og Tyrklandi í 3. riðli, en Ísland féll úr 2. riðli í síðustu keppni. Landsliðsþjálfari U20 er Svíinn Owe Holmberg sem kemur frá Nyköping í Svíþjóð. U20 ára lið okkar verður ungt því einungis einn leikmaður í æfingabúðunum er fæddur 1985, 9 fæddir 1986 og 1987, 14 fæddir 1988 og 3 fæddir 1989. Þetta er hins vegar efnilegur hópur sem á framtíðina fyrir sér. Hópinn má sjá hér.