Fréttir

Total items: 1194

Íshokkí í bakgarðinum

Dags: 14.12.2004 21:09


backyard.jpg

Það verður ekki af Kanadamönnum tekið að þeir elska íshokkí. Til að ná enn betri árangri leggja menn ýmislegt á sig en algengt er t.d. að foreldrar komi upp einkasvelli í bakgarðinu. Frægt er hvernig pabbi Wayne Gretzkys bjó til svell í bakgarðinum svo að strákurinn fengi að æfa sig. Og kannski náði hann þannig forskot á aðra polla. Ekki er víst að þetta gengi upp hér á landi, a.m.k. ekki hér fyrir sunnan í umhleypingunum. Hér er ein mynd af slíku bakgarðssvelli, með auglýsingum og öllu tilheyrandi!