Dags: 13.12.2004 11:25

Í gærkvöldi lék 3. fl SR við Björninn í Egilshöll í Íslandsmótinu. Fyrirfram var búist við mjög erfiðri viðureign fyrir SR því Björninn er með firnasterkt lið í þessum flokki. Okkar strákar voru þó ákveðnir í því að koma til leiks með það eitt í huga að spila íshokkí fyrst og fremst en ekki láta sogast inn í einhvern barning. Þeir voru því vel stemmdir enda kom það á daginn. Þeir léku mjög skynsamlega í vörn og sókn þar sem pökkurinn gekk vel á milli leikmanna. Á köflum pressaði þó Björninn stíft án þess að ógna marki SR verulega, og ef vörnin opnaðist þá sá stórgóð markvarsla Ævars Björnssonar um að ekki færi illa. Leikurinn var í járnum lengst af, SR þó með eitt til tvö mörk yfir þangað til seint í þriðja leikhluta er SR skoraði hvert markið á fætur öðru og sigraði glæsilega 8 - 3. Á þessum kafla sýndu leikmenn Bjarnarins agaleysi sem dró úr einbeitingu þeirra og spili því þeir geta gert betur.
Það verður að hrósa leikmönnum SR sérstaklega fyrir prúðan leik og mættu ýmsir aðrir taka þá sér til fyrirmyndar í þeim efnum. Fyrir leikinn var þeim uppálagt að spila íshokkí og hafa gaman af þessu. Það var nákvæmlega það sem þeir gerðu og uppskáru í samræmi við það. Þeir misstu að vísu af jólaballinu hjá SR en fengu í staðinn kærkominn sigur gegn þessu sterka liði Bjarnarins.
Mörk SR: Þorsteinn Björnsson 2, Egill Þormóðsson 1, Gísli Ólafsson 1, Jón Þröstur Hauksson 1, Pétur Maack 1, Stefán Tumi Þrastarson 1 og Styrmir Friðriksson 1.
Mörk Bjarnarins: uppl. vantar