Fréttir

Total items: 1194

Jólaball um helgina

Dags: 10.12.2004 08:57


Við viljum minna á jólaball íshokkídeildar SR sem verður á sunnudagskvöldið í Skautahöllinni í Laugardal. Gleðin hefst kl. 18:30. Skautað verður í kringum jólatréð, farið í leiki og jólalög spiluð. Allir fá náttúrulega jólapoka en við minnum foreldra á að koma með meðlæti á hlaðborðið, sem tókst svo vel í fyrra. Allir leikmenn SR eru velkomnir með foreldrum sínum og systkinum.