Dags: 08.12.2004 22:27
Dagana 13. - 16. janúar n.k. fer fram í Sánki Pétursborg í Rússlandi eins konar meistaradeild í íshokkí, þar sem þátt taka meistaralið frá 6 bestu íshokkíþjóðunum í Evrópu. Þessi keppni er ný af nálinni og er ætlað að skera úr um það hvaða félagslið í Evrópu sé það sterkasta. Undirbúningur fyrir þetta mót hefur tekið nokkur ár hjá Alþjóðasambandinu en nú verður þetta að veruleika. Margir bíða spenntir eftir þessari keppni þar sem skiptar skoðanir eru á því hvað sé sterkasta deildin í Evrópu; sú sænska, finnska, rússneska, þýska eða einhver önnur? Úr því fæst þá væntanlega skorið. Í framtíðinni er ætlunin að koma síðan á leik milli þess liðs sem vinnur Stanley bikarinn í NHL og þess liðs sem vinnur titilinn besta félagslið Evrópu. Þá hljóta sjónvarpsstöðvarnar hér á landi að taka við sér!