Dags: 08.12.2004 14:18
Í gærkvöldi áttust við í Egilshöllinni SR og Björninn í Íslandsmóti karla í íshokkí. Leikurinn var áhugaverður fyrir margra hluta sakir og víst var á ferðinni skemmtilegur, en kaflaskiptur, leikur á að horfa.
Nokkuð jafnt var með liðum í fyrsta leikhluta og barátta mikil. Í öðrum leikhluta snérist leikurinn SR í hag sem náði að skora 6 mörk á meðan Bjarnarmenn skoruðu 1 mark. Flest komu mörkin eftir skemmtilegt spil SR-inga. Í þriðja leikhluta fór allt á versta veg hjá SR. Leikmenn voru dæmdir hvað eftir annað í boxið, bæði fyrir slæm brot og ekki. Rétt fyrir lok þriðja leikhluta stóðu SR-ingar frammi fyrir því að vera án Þórhalls Viðarssonar og Gauta Þormóðssonar, sem fengu sturtudóma, og án Tékkans okkar knáa Zdenek, sem fékk 10 mínútur fyrir kjaftbrúk og var síðan sendur í sturtu. SR-ingar þurftu því að spila 3 á 4 í 5 mínútur og síðan 3 á 5 í 2 mínútur til viðbótar. Alls voru SR-ingar því 7 mínútur þrír á ísnum. Bjarnarmenn nýttu sér þetta færi vel og náðu að skora hvert markið á fætur öðru gegn undirmönnuðum SR-ingum, sem voru í nauðvörn það sem eftir var leiks. Þeim tókst þó að standast pressuna en leikurinn endaði 8 - 7 fyrir SR.
Mörk SR
Sindri Már Björnsson 2, Zdenek Prochazka 2, Gauti Þormóðsson 1, Svavar Steinsson 1, Úlfar Andrésson 1 og Þorsteinn Björnsson 1. Mörk Bjarnarins: Binni 4, Vilhelm 1, Sergei 1 og John 1.