Dags: 06.12.2004 22:31
Næstkomandi sunnudagskvöld verður jólaball íshokkídeildar SR haldið en gleðin hefst kl. 18:30. Þar verður skautað í kringum jólatréð, farið í leiki og jólalög spiluð. Allir fá náttúrulega jólapoka með glaðningi og slegið verður upp hlaðborði. Allir leikmenn SR eru velkomnir með foreldrum sínum og systkinum. Svo má minna á að síðasta æfingin fyrir jól er sunnudagskvöldið 19. desember.