Fréttir

Total items: 1194

Reykjavíkurslagur í Egilshöllinni

Dags: 06.12.2004 22:27


Á þriðjudagskvöldið kl. 19:30 mætir SR Birninum í Íslandsmóti karla en þessi leikur fer fram í Egilshöllinni. Búast má við skemmtilegum leik því þessi lið eru bæði með unga, spræka stráka og bæði eru þau með mjög sterkan, erlendan leikmann, Sergei hjá Birninum og Zdenek hjá SR. Ef bæði liðin einbeita sér að íshokkí verður gaman að horfa á þessa viðureign, og kannski láta fjölmiðlar sjá sig, einsog fyrir norðan. Áfram SR!