Dags: 04.12.2004 00:37
Um helgina verða tveir leikir í Íslandsmóti karla er SA og Narfi spila innbyrðis tvo leiki fyrir norðan. Á þriðjudaginn mætir Björninn svo SR í Egilshöllinni. Eftir 6 umferðir er SR með 9 stig, SA með 7 stig og Björninn og Narfi með 4 stig. Eins og stigataflan gefur til kynna hefur keppnin sjaldan verið eins jöfn og spennandi þar sem öll liðin virðast geta unnið alla.