Dags: 02.12.2004 12:34
Eins og flestir áhugamenn um íshokkí ættu að vita er enn ekki farið að leika í NHL deildinni vegna deilna milli leikmanna og eigenda liðanna um kaup og kjör. Þessi einkennilega staða hefur haft ýmislegt í för með sér. Þannig hefur t.d. kanadíska ríkissjónvarpið þurft að fella niður þáttinn "Hockey night in Canada" en þessi sex klst. langi þáttur hefur verið sýndur samfelld í 52 ár á hverju laugardagskvöldi á meðan NHL deildin stendur yfir. Nú verða þeir að sýna Disney myndir á laugardagskvöldum við takmakaða hrifningu hinna heitu íshokkíáhugamanna sem Kanadabúar eru. Þ'o hafa þeir reynt að koma á móts við þá með nýjum þætti "Making the cut", sem er eins konar raunveruleikaþáttur þar sem fylgst er með upprennandi leikmönnum og valdir úr sex leikmenn sem sem kanadísku NHL liðin geta svo valið í Nýliðavalinu ("draft pick") næsta vor. En eins dauði er oft annars brauð; evrópskt íshokkí hreinlega blómstrar um þessar mundir. Fjöldi NHL leikmanna hefur streymt til Evrópu til að spila í deildunum þar (sjá lista hér). Eins og gefur að skilja hefur þessi innrás NHL leikmann styrkt mikið þessar deildir, áhorfendum hefur fjölgað gífurlega sem og tekjur liðanna. Í Svíþjóð eru t.a.m. yfir 60 NHL leikmenn og ekki þarf að koma á óvart að stigahæsti leikmaðurinn þar er Peter Forsberg, fyrrum Colorado Avelance maður og einn sá allrabesti úr NHL. Nú spilar Peter með Modo ásamt mörgum öðrum úr NHL. Þessi gósentíð í Evrópu getur þó breyst á einni nóttu því flestir þessara leikmanna eru með klásúlu í sínum samningi sem leyfir þeim að skipta strax yfir í NHL ef deilan leysist. En til að strá salt í sárin fyrir Kanadamenn munu sjónvarpsstöðvar þar brátt hefja útsendingar á leikjum úr sænsku Elíte deildinni þar sem stjörnurnar þeirra leika!