Dags: 01.12.2004 16:49
Á heimasíðu SA kemur fram að Magnús E. Finnsson, formaður Skautafélags Akureyrar, verður tímabundið frá formannsstörfum vegna veikinda. Það er skarð fyrir skildi þar sem Magnús er ákaflega mikilvægur fyrir íshokkíhreyfinguna. Við í SR sendum Magnúsi og fjölskyldu hans okkar innilegustu stuðningskveðjur með ósk um góðan bata og að við fáum að njóta aftur krafta hans sem fyrst.