Fréttir

Total items: 1194

Annasamri íshokkíhelgi lokið

Dags: 29.11.2004 18:27


Um helgina var nóg að gera í íshokkíinu. Í Egilshöll fór fram Landsbankamótið fyrir 4. flokk sem Björninn hélt. Mótið tókst í alla staði mjög vel, skipulagið gott og leikgleðin í fyrirrúmi. Eftir marga skemmtilega leiki stóð 4A flokkur SR uppi sem sigurvegari en þeir unnu alla fjóra leiki sína. Glæsileg frammistaða og við óskum þeim til hamingju.  

Á Akureyri mættust síðan SA og Björninn í tveimur leikjum Íslandsmóti karla. Á laugardagskvöldið tapaði Björninn 9-6 og síðan 8-4 á sunnudagsmorgni. Erfitt hefur reynst að fá nákvæma lýsingu á þessum leikjum en um þá má m.a. lesa á heimasíðu Narfans. Eftir þeirri lýsingu að dæma var leikgleði eldri leikmanna ekki endilega í fyrirrúmi (sjá hér).