Fréttir

Total items: 1194

SR fékk treyju Fálkanna að gjöf

Dags: 23.11.2004 12:46


afhending.jpg

Eitt af þeim liðum sem tóku þátt í Iceland Invitational mótinu um helgina var Westmount-Montreal liðið frá Kanada. Í fórum sínum voru þeir með repliku af treyju Fálkanna sem Brian Johannesson í Kanada vildi færa Skautafélagi Reykjavíkur á mótinu. Norman Richer, fyrirliði W-M, afhenti Birni Örvar, formanni íshokkídeildar SR, treyjuna. Brian er sonur Konnie Johannesson úr hinu fræga liði Fálkanna sem vann Ólympíugullið fyrir Kanada í íshokkí á Ólympíuleikunum í Antwerpen 1920. Fálkarnir voru synir íslenskra inflytjenda sem fluttu til Kanada í lok 19. aldar. Saga Fálkanna er einstök og stórmerkileg sem einhvern tímann verður gerð betri skil. Þetta er mikill heiður sem Brian sýnir íshokkí hér á landi en treyjunni verður komið fyrir á góðum stað til sýnis í Skautahöllinni í Laugardal. Skautafélag Reykjavíkur vill þakka Brian kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf.