Fréttir

Total items: 1194

Skemmtilegt Brynjumót

Dags: 16.11.2004 08:16


Um helgina lauk hinu árlega Brynjumót á Akureyri fyrir yngri flokka, en að þessu sinni voru það 5. og 6. flokkur, ásamt 7. flokki sem tóku þátt. Mótið telst alltaf vera heilmikill viðburður fyrir yngri leikmennina og mikil eftirvænting í loftinu er mótið nálgast. Og ekki stóð á hinum ungu leikmönnum að njóta þess og hafa gaman af. Allir stóðu þeir sig með prýði. Skipulag mótsins var mjög gott og Akureyringum til sóma. SR þakkar þeim fyrir gestrisnina. Af hálfu SR var skipulagið í höndum Helga Valssonar, aðalfararstjóra, sem vann verkið af elju. Honum til aðstoðar í ferðinni voru þeir Einar Viðarsson, Jón Þór Eyþórsson og Nanna Kristjánsdóttir. Við þökkum þeim fyrir alla aðstoðina þessa annasömu helgi. Auk þessa komu fleiri foreldrar að skipulaginu og kunnum við þeim okkar bestu þakkir. Fljótlega birtum við svo myndir frá mótinu á heimasíðunni.