Dags: 09.11.2004 11:04
Um næstu helgi fer fram hið árlega Brynjumót í íshokkí fyrir yngri flokka sem Skautafélag Akureyrar skipuleggur. Að þessu sinni verða það 5., 6. og 7. flokkur sem taka þátt í mótinu. Verið er að leggja síðustu hönd á skipulag ferðarinnar til Akureyrar en endanlega verður hægt að ganga frá skipulaginu er mótadagskráin liggur fyrir. Það stefnir í mjög góða þátttöku SR-inga í þessu móti og því mikilvægt að allir leggist á eitt um það að gera ferðina sem eftirminnilegasta og skemmtilegasta fyrir yngstu leikmennina okkar. Upplýsingar um skipulag ferðarinnar í smáatriðum verður komið til foreldra eigi seinna en á miðvikudagskvöldið. Ennfremur munu frekari upplýsingar um ferðina verða birtar hér á netinu.