Fréttir

Total items: 1194

Sögulegur dagur fyrir íshokkí á Íslandi

Dags: 06.11.2004 14:29


Í dag, 6. nóvember, var Íshokkísamband Íslands formlega stofnað sem sérsamband innan ÍSÍ. Fram til þessa hefur íshokkíið verið með listhlaupi í sameiginlegu sambandi, Skautasambandi Íslands, en nú verða þessar tvær greinar aðskyldar í tveimur samböndum. Hinn nýji formaður ÍHÍ er Viðar Garðarsson. Stofnfundinum stýrði Eller B Scram, forseti ÍSÍ, en ávarp flutti Jan-Ake framkvæmdastjóri Alþjóða Íshokkísambandsins IIHF.  Alþjóðasambandið hefur dyggilega stutt við bakið á íslensku íshokkíhreyfingunni og í þakkarskyni var IIHF færð gjöf frá ÍHÍ, innrömmuð mynd af opnu úr Möðruvallarbók, skinnhandriti er lýsir íshokkíkappleik til forna. Stofnun sérsambandsins er gæfuspor sem á eftir að styrkja íshokkíhreyfinguna mikið.