Fréttir

Total items: 1194

SR norður um helgina

Dags: 05.11.2004 09:50


Á morgun. laugardag, heldur SR norður í land til að mæta Narfanum í Íslandsmóti karla. Þessi lið mættust um síðustu helgi í Laugardalnum en þá tókst Narfa að stöðva sigurgöngu SR með jafntefli. Okkar menn vilja sjálfsagt gleyma þeim leik, enda spilamennskan á tíðum gloppótt. Liðið er hins vegar staðráðið í því að gera betur, enda hefur það alla burði til þess. Þó má ekki gleyma að Narfi er með sterkt lið sem alls ekki má vanmenta. Það er skarð fyrir skildi að fyrirliði SR, Ingvar Þór Jónsson, leikur ekki með vegna meiðsla. Hann mun þó stjórna liðinu af bekknum í fjarveru Stanislavs sem nú er í Tékklandi í stuttri heimsókn. Við óskum okkar mönnum góðs gengis.   Með í förinni norður verður 3. flokkur SR sem mun spila á Akureyri við SA. Sá leikur verður þó með breyttu sniði því ætlunin er að búa til tvö ný lið úr þessum tveimur, og gefa þannig strákunum tækifæri á að kynnast betur innbyrðis og hafa gaman af þessu.