Fréttir

Total items: 1194

Foreldrafundir á næstunni

Dags: 03.11.2004 11:32


Við viljum minna foreldra á að foreldrafundir fyrir alla yngri flokka verða haldnir á næstunni. N.k. laugardag  6. nóvember kl. 10:15 verður fundur fyrir foreldra 6. og 7. flokks. Mánudaginn 8. nóv kl. 18:00 fyrir foreldra í 5. flokki og þriðjudaginn 9. nóvember kl. 20:00 fyrir foreldra í 4. flokki. Við hvetjum foreldra eindregið til að mæta á þessa fundi, þarna gefst tækifæri á að kynnast betur starfinu í vetur og þjálfurum, koma með fyrirspurnir og taka þátt í umræðum. Fundirnir fara fram í félagsaðstöðu SR, á efri hæð skautahallarinnar í Laugardal.