Dags: 29.10.2004 17:13
Á morgun, laugardagskvöld kl. 18:50, mæta SR-ingar Narfa í Íslandsmóti karla. Þetta er í fyrsta sinn er þessi tvö lið eigast við en hið nýstofnaða íshokkílið Narfa er fjórða liðið í deildinni. SR-ingar hafa byrjað þetta mót mjög vel og unnið fyrstu fjóra leiki sína. Narfi náði hins vegar jafntefli á móti SA og er því sýnd veiði en ekki gefin, enda margir reyndir leikmenn innan raða þess. Spurningin er því hvernig þeim reiðir af gegn SR-ingum sem eru með léttleikandi lið og mikla breidd sem gæti nýst þeim í þessari viðureign. Leikurinn, sem fram fer í Skautahöllinni í Laugardal, verður því án efa skemmtilegur fyrir áhorfendur sem við hvetjum til að fjölmenna í Laugardalinn. Áfram SR!