Dags: 28.10.2004 09:39
Það virðist fátt geta stöðvað sigurgöngu SR-inga í Íslandsmóti karla því í gærkvöldi héldu þeir uppteknum hætti er þeir lögðu Björninn 4 - 1. Leikurinn hófst með miklum hraða og eftir nokkrar mínútur voru SR-ingar búnir að fá fjögur dauðafæri án þess að nýta sér þau. Björninn átti skot í stöng og skoruðu skömmu seinna sitt eina mark. SR-ingar létu þetta ekki slá sig út af laginu og bara spurning hvenær þeir jöfnuðu leikinn og settu í fluggír. Zdenek jafnaði fljótlega og eftir það fylgdu tvö glæsileg mörk frá Gauta-klárar-öll-færi-sín-Þormóðssyni. Staðan 3 - 1 og fyrsti leikhluti á enda. Annar leikhluti hófst með svipuðum krafti, SR sótti án afláts og Ágúst Ásgrímsson bætti fjórða markinu við með þrumuskoti í vinkilinn. Stórglæsilegt mark og algerlega óverjandi fyrir annars mjög góðan markvörð Bjarnarins. Þegar hér var komið við sögu var ljóst að SR-ingar voru í stuði og spurningin einungis hversu stór sigurin yrði. En hann varð aldrei stærri; fljótlega eftir markið meiddist Helgi Páll illa, fékk högg í andlitið þannig að tvær framtennur brotnuðu. Upp úr því fylgdi brottrekstur Bjarnarleikmanns og síðan mótmæli forsvarsmanna Bjarnarins við dómara leiksins sem lauk með því að Björninn gaf leikinn og gekk af velli. Sjaldgæft í flokkaíþróttum á Íslandi en íshokkímenningin hér á landi fer sínar eigin leiðir þar sem dramað er í fyrirrúmi. Leikurinn var annars ágætis sýningargluggi fyrir stöðu íslenskra íshokkíleikmanna í dag, prúðmannlega leikinn af beggja hálfu, hraður og skemmtilegur fyrir hina fjölmörgu áhorfendur er lögðu leið sín í Laugardalinn. Við þökkum þeim fyrir stuðninginn við íshokkíið. Við þökkum líka sjónvarpinu fyrir að mæta á leikinn í öðrum leikhluta en því miður fyrir íshokkíið náðu þeir ekki að mynda íshokkí. En þeir hafa þolinmæði og mæta bara á næsta leik. Fyrir áhugasama þá geta þeir lesið nánar um leikinn á mbl.is sem annars skrifar ekki mikið um íshokkí á Íslandi. Sjá hér.