Dags: 26.10.2004 15:20

Á morgun, miðvikudagskvöld kl. 20:30, mæta SR-ingar Birninum í Skautahöllinni í Laugardal í Íslandsmóti karla. SR hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína í mótinu en Björninn er með tvo sigra og svo eitt tap, gegn SR. Íslandsmótið hefur sjálfsagt aldrei verið jafn spennandi og nú, og með fjórða liðinu í mótinu, Narfanum, hefur skemmtanagildið aukist verulega. Búast má við skemmtilegri viðureign á miðvikudagskvöldið þar sem bæði þessi lið eru með léttleikandi stráka og hvort lið með einn öflugan erlendan leikmann. Leikurinn verður án efa jafn og spennandi enda hafa leikir þessara liða yfirleitt verið í járnum. Við hvetjum íshokkíáhugafólk til að fjölmenna í skautahöllina.